|
|
27.09.2006 20:58:56 / elinluca
Já ég veit . Ég er alger slúbbert . Það finnst örugglega
ekki latari bloggari en ég í öllum heiminum. Væri ekki hissa ef það
væru allir löngu búnir að gefast upp á að kíkja hingað inn.
Alla vega .
Daman nú auðvita farin að borða meira en bara smakk á kartöflum.
Auðvita komin með 5 tennur og er alger dúlla þegar hún brosir út að
eyrum . Svo er hún farin að sitja eins og herforingi en er aftur
á móti mega pirruð yfir því að komast ekkert úr stað þegar hún
liggur á gólfinu. Er farin að snúa sér í hringi á maganum og
jafnvel aðeins að íta sér aftur á bak en það er ekki vinsælt þegar
maður vill komast áfram. Svo er hún svo dugleg að busla og sprikla
í ungbarnasundinu einu sinni í viku og verður svo ekkert smá pirruð
þegar sömu spriklheyfingarnar virka ekki eins vel á gólfinu.
Talandi um sundið. Vorum að byrja að fara í kaf í síðustu viku. Var
ekkert smá dugleg í fyrstu skiptin. Svo núna í þessari viku var hún
ekki alveg eins cool yfir þessu veseni. Þetta kemur.
Annars bara allt fínt að frétta héðan. Búin að vera þvílík bongó
blíða hérna í um 2 vikur en svo fór að rigna í dag. Kannski haustið
sé að láta á sér kræla loksins (já eða kannski ekkert loksins, ekki
eins og ég sé búin að vera að bíða eftir því). Hlakka til að fara
heim og kíkja á fólkið mitt. Eins og mér líður rosalega vel hérna í
Svíaríki þá vildi ég óska að ég hefði þau hjá mér. Guði sé lof
fyrir netið og vefmyndavélar. Annars er ég bara ekkert viss um að
ég mundi meika þetta. Prinsessan kemur auðvita með en pabbi verður
að vinna svo við komum því bara einar dömurnar.
Jæja, þetta hlýtur að duga í bili. Kveðja frá okkur öllum 
»
09.06.2006 21:10:14 / elinluca
Jæja, haldiði ekki að daman sé farin að fá smá mat að smakka.
Fékk kartöflu fyrst um daginn og var nú ekki par hrifin. Hún var
reyndar alveg voðalega sibbinn akkurat þá þannig að daginn eftir
þegar ég prufaði aftur þá gekk það mun betur. Hún hefur alla vega
greinilega ekkert á móti bragðinu en áferðina er hún ekki alveg að
fíla eins vel. Það kemur . Þetta eru bara svona míní skammtar og
bara heimatilbúið sem ég er að gefa henni svona til að venja hana
við. Þannig að þegar hún þarf svo að fara að borða þá þurfi ég ekki
að byrja á því.
Kveðja frá okkur öllum 
»
26.05.2006 21:34:03 / elinluca
Hef mikið verið að hugsa um það hvernig ég finn öðruvísi fyrir
sorginni núna en til dæmis þegar ég missti langömmu mína eða afa
minn. Langamma var jú orðin mjög gömul og minnið ekki orðið uppá
marga fiska og hún margbúin að segja það sjálf að hún væri nú alveg
orðin tilbúin að fara. Og afi búinn að vera mikið veikur. Auðvita
fann ég fyrir sorg en það var samt svo auðvelt að segja að við
sjálfan sig að nú líður þeim betur þar sem þau eru. Það var svo
auðvelt að brosa og hugsa um allar góðu minningarnar sem við höfðum
skapað saman. Ekki að það sé ekki auðvelt með Óla pabba líka ég
bara stend mig að því af og til að vera alveg svakalega reið útí
hann. Finnst að hann hefði átt að geta gert eitthvað til að koma í
veg fyrir þetta. Hann hafði svo margar góðar ástæður til að taka
sér tak og fá hjálp. Og svo óendanlega mikið af góðu fólki sem
hefðu stutt heils hugar við bakið á honum. Ekki að ég haldi að það
hafi verið auðvelt og auðvita var það það ekkert því annars hefði
hann löngu verið búinn að því. Hljómar ekki orðatiltækið þannig
einhvern veginn að maður eigi ekki að dæma aðra fyrr en maður hefur
gengið alla vega kílómeter í hans skóm. Svo laumast í kollinn á mér
af og til hugsunin um að ég hefði átt að vera búin að reyna að tala
við hann. Ég hefði átt að gera eitthvað. Ég veit samt alveg full
vel að ég hefði ekkert getað gert. Og ef svona sterkur og
mikill maður eins og hann var getur brostið svona, er þá einhver
von fyrir okkur hin?
Svo finn ég það að þessi reiði og allar tilfinningarnar í
kringum það hvernig hann fór gerir það að verkum að ég á alveg
rosalega erfitt að sleppa af honum takinu og sætta mig við að hann
sé farinn. Langar svo oft að spóla til baka og fá lánaðann hjá
honum bílinn láta hann urra á kærastana mína eins og einn þeirra
komst svo skemmtilega að orði. Mig langar að koma niður í morgunmat
og vera boðið í nefið. Mig langar að sitja með honum við veisluborð
og vera hvött til að borða meira en ég get í mig látið. Mig langar
að sitja með honum inni í stofu og horfa á góða bíómynd eða
spaugstofuna.
Mest af öllu vona ég að hann viti hvað ég sakna hans mikið og
hvað mér þótti ótrúlega vænt um hann. Gat aldrei sagt það við hann,
hann var ekki þannig maður. Vona að hann bjóði mér í ferð þegar við
hittumst næst. Það er engin ferð án þín.......
»
17.05.2006 08:11:38 / elinluca
Jæja, það er nú orðið ansi langt síðan við skrifuðum eitthvað
hér inn. Ekki það að við nennum því ekki, bara einhvern vegin
alltaf eitthvað annað að gera.
Daman og ég fórum alla vega til íslands um daginn. Það var
auðvita voða gott að koma heim og allri voða spenntir að sjá hana
Petreu en við hefðum nú alveg viljað sleppa þessari ferð. Ekki að
við vildum ekki koma en ástæðan fyrir ferðinni var mjög sorgleg.
Fósturfaðir minn lést þann 27. apríl og við komum til að vera við
útförina og til að vera nálægt og styðja mömmu og bræður mína. Var
einmitt að hugsa um þetta allt saman í gær. Miðað við hvað ég er
leið yfir þessu öllu saman þá get ég varla ímyndað mér hvað þau eru
að ganga í gegnum. Stóð og var að vaska upp í gær og allt í einu
fóru tárin að streyma niður kinnarnar . Sá pabba alveg ljós
lifandi fyrir mér í sparifötunum á aðfangadags kvöld, rétt fyrir
klukkan 6 að bíða eftir okkur hinum þar sem hann var alltaf fyrstur
að hafa sig til. Á slaginu 6 fengu svo allir koss og ósk um
gleðileg jól. Svo eftir matinn voru pakkarnir opnaðir niðri í
garðstofu og kveikt upp í arninum. Það mátti ekki gefa honum pakka
og alltaf þegar hann fékk eitthvað þá sagði hann: "Handa mér? Veit
fólk ekki að það á ekki að gefa mér pakka". Æ hvað ég á eftir að
sakna jólanna á Boðagrandanum.
Flugferðirnar gengu annars alveg eins og í sögu og prinsessan
bara svaf og heillaði alla hina farþegana alveg uppúr skónum. Við
komum svo næst um miðjan júlí og þá í gleðilegum erindagjörðum þar
sem við erum að fara í 2 brúðkaup og svo auðvita bara að slappa af
og njóta þess að vera með fjölskyldunni. Vona bara að við fáum gott
veður.
Kveðja, Elín, Luca og Petrea.
»
04.04.2006 14:32:17 / elinluca
Jæja, þá eru þær farnar skvísurnar, já og auðvita gæinn hann
Gunnar . Það voru sem sagt í heimsókn hjá okkur 6 gellur ásamt
tveimur krílum. Mikið rosalega var gaman að sjá ykkur og það verður
að segjast að það var sko ekki mikið fyrir ykkur haft. Þið eruð
hreint út sagt þægilegustu gestir sem ég hef nokkurn tíma kynnst.
Þykir bara leiðinlegt að hafa endað þetta með að leggjast í
einhverja bölvaða maga pest. Var svo tilbúin að versla með ykkur í
Malmö en ég hef pottþétt verið farin að veikjast strax í lestinni
því að ég var voðalega annars hugar allan þann tíma sem ég var
þarna. Við getum ekki beðið eftir að fá ykkur í heimsókn aftur. Það
er sko alveg á tæru að við verðum að endurtaka þetta, já það er að
segja ef mennirnir ykkar þora að sleppa ykkur hingað aftur eftir
alla eyðsluna .
Annars er allt gott að frétta af henni Petreu prinsessu. Hún
bara stækkar og stækkar. Við fengum að sjá fyrsta alvöru brosið í
dag. Ekkert smá sætt. Svo er hún aðeins byrjuð að spjalla þessi
elska. Um að gera að byrja að æfa sig snemma svo maður geti
spjallað við fólkið heima á Íslandi þegar við komum í heimsókn í
sumar. Verð alger gella. Fékk æðislega fínan kjól frá stelpunum sem
voru í heimsókn og svo keypti mamma hennar á hana 2 kjóla í
H&M. Gat ekki staðist mátið þegar allar hinar stelpurnar voru
að versla eins og óðar .
Kveðja, Elín, Luca og Petrea Prinsessa
»
20.03.2006 09:41:18 / elinluca
Jæja, þá erum við búnar að prufa það. Vonum bara að þetta hafi
verið einstakt tilfelli en ekki eitthvað sem hún ætlar að gera að
vana. Er búin að vera svo yndisleg þessi elska en svo í fyrri nótt
svaf hún illa og var mjög óvær allan daginn eftir. Það var ekki
fyrr en við settum hana í vagninn og fórum í langan og góðan
göngutúr eftir kvöldmatinn, sem sagt um hálf 7 að hún náði að sofna
almennilega og þá svaf hún líka til miðnættis. Við vorum alltaf að
bíða eftir að hún mundi vakna sjálf því að við vildum ekki vekja
hana fyrir kvöld gjöfina þar sem hún hafði sofið svo lítið yfir
daginn. Klukkan 23 gafst ég upp og tók hana uppúr vagninum, þar sem
hún lá enn, en hún svaf svo fast að hún rumskaði ekki einu sinni.
Sátum meira að segja í smá tíma og töluðum við ömmu á skypinu en
það kom ekki einu sinni rifa á augun. Við ákváðum því bara að fara
að sofa því við vorum orðin ansi þreytt og Luca meira að segja
sofnaður á sófanum. Við vorum varla komin uppí, þá vaknaði daman.
Henni leið þó greinilega betur því hún bara fékk nýja bleyju og
borðaði og steinsofnaði svo aftur. Grunar að skyrið sem ég var búin
að vera að háma í mig seinustu 2 daga á undan hafi ekki farið vel í
dömuna. Ætla alla vega að gera pásu á því.
Svo er maður búin að fara í bað og allt núna en það var ekki
vinsælt. Alla vega ekki svona í fyrsta skiptið. Vona að það verði
betra næst 
Knús og kossar frá okkur öllum 
»
15.03.2006 13:55:58 / elinluca
Jæja, þá er maður loksins kominn í nokkuð setvænt ástand og
kominn tími á að láta vita af sér.
Eins og flestir eru kannski búnir að heyra þá kom lítil
prinsessa í heiminn 7. mars, eða 10 dögum eftir settann dag. Hún
var 53 cm. og 4150 gr. og þrátt fyrir að hafa látið bíða eftir sér
í 10 daga þá var hún sko alls ekkert að dunda sér við að koma út
þegar hún loksins ákvað að láta sjá sig. Við fórum fyrst uppá deild
klukkan 22, strax eftir að Prison brake var búið ( má sko alls
ekki missa af því ). Þegar við komum þangað var ég sett í
monitor og svo kom ljósan og skoðaði mig um 23 leitið. Þrátt
fyrir að vera komin með nokkuð reglulega verki með ca. 3 mínútna
millibili þá var ég ekki komin með nema 1 í útvíkkun og ljósan
sagði okkur því að þetta gæti nú tekið dágóðan tíma þar sem tetta
væri fyrsta barn og ráðlagði okkur að fara bara heim aftur og reyna
að hvílast aðeins. Taka bara verkja lyf og reyna að sofa. Eitthvað
hefur þó þessi skoðun kikkstartað öllu dæminu því þegar við komum
heim var ég komin með töluvert harðar hríðar og ekki get ég nú sagt
að verkja taflan hafi hjálpað mikið og ekki séns að ég gæti sofið.
Við þrjóskuðumst þó við vegna þess að við vildum nú alls ekki fara
í aðra fýlu ferð. Það var ekki fyrr ég var búin að æla og
komst varla fram úr rúminu fyrir verkjum sem ég sagði hingað og
ekki lengra og við fórum aftur uppeftir og komum þangað rúmlega 4.
5 mínútum eftir að við komum inn og ég var komin uppí rúm fór
vatnið og þegar ljósan kom að skoða mig var ég komin með fulla
útvíkkun og farin að þurfa að rembast. Þá fékk ég glaðloftið og það
hefði þurft að svæfa mig til að ná grímunni úr höndunum á mér.
Þvílík himnasending. Það var svo klukkan 6:32 sem ég bað Luca, hin
rólegasta, um að hringja bjöllunni og þegar hann fór að athuga hvað
væri í gangi þá var bara litli hausinn hennar kominn út og við bara
alein í herberginu. Það bjóst sko enginn við að þetta mundi
taka svona stuttan tíma.
Við erum alla vega komin heim og erum hamingjusömustu foreldrar
í heimi og ekkert smá stolt af litlu prinsessunni okkar sem gerir
lítið annað en að sofa og borða. Svo er hún líka búin að fá þetta
líka virðulega nafn og heitir Petrea Tosca Eir Zucchini og hún
biður alveg rosalega vel að heilsa ykkur öllum.
»
15.03.2006 13:34:38 / elinluca
Var búin að skrifa fullt um fæðinguna og litlu dúlluna okkar en það
bara gufaði upp. Helv...... tölvur........ Jæja, það er lítið annað
að gera en byrja aftur!!!!!!!!!!!
»
27.02.2006 14:29:25 / elinluca
Jæja, þá eru DAGURINN kominn og farinn. Ég var sem sagt sett 25.
febrúar og í dag er kominn sá 27. og enn er litli púkinn minn inni
í maganum á mömmu sinni. Hefur það greinilega alltof gott þarna
inni. Hélt að allt væri að fara af stað á miðvikudaginn í síðustu
viku en svo datt það allt saman niður og hef ekki fundið verk
síðan. Samdrætti fæ ég enn af og til en ekkert reglulegt. Sagði í
morgun við Luca að mig grunaði að krílið væri bara svona með
eindæmum tillitsamt. Mamma og Grettir ætla nefnilega að koma og
kíkja á okkur 12. mars og til að Luca verði enn í fríi meðan þau
eru hér þá fattaði krílið að það yrði að koma aðeins seinna .
Annars á ég næst tíma hjá ljósmóðurinni núna á miðvikudaginn og
þá skilst mér að hún bóki mig í tíma í skoðun og monitor á
fæðingadeildinni í Lundi. Þar verð ég svo bókuð í tíma fyrir
gangsetningu sem maður vonar svo auðvita að ég þurfi ekkert á að
halda.
Læt ykkur vita hvenær ég fæ tíma í gangsetningu, þ.e. ef það
gengur svo langt. Annars vona ég bara að næstu fréttir verði um
fæðingar þyngd og lengd og svo auðvita kynið, sem allir eru svo
spenntir að fá að vita .
»
16.02.2006 10:27:34 / elinluca
Jæja, það leið smá tími milli blogga en ekki mánuðir alla
vega.
Það er nú voða lítið að gerast hér. Bara stækkum og stækkum. Ég
sem var svo ánægð þegar krílið skorðaði sig því þá seig það vel
niður og hætti að sparka í rifbeinin mín. Nú eru sumir bara búnir
að stækka svo mikið síðan þá að rifbeinin farin að fá að finna
fyrir því aftur. Ekki þægilegt. Annars er ég með mikla samdrætti og
þá helst á kvöldin en yfirleitt án verkja, kemur kannski 3-4 með
pínu verk á dag. Er svo að fara í skoðun á morgun, föstudaginn,
verð að muna eftir að reyna að fá lánað TNS tæki. Langar mikið að
prufa að hafa það.
Við kallinn fórum og versluðum bleyjur í gær, já og fyrir mig
líka . Keyptum alveg helling, þ.e. fyrir krílið. Fengum nefnilega
svo mikið af svona afsláttarmiðum. Spöruðum alveg gommu. Shit hvað
ég var eins og bjáni að velja bindi. Hef ekki keypt bindi í fleiri
ár, held bara ekki síðan ég var 17, sem gerir þá næstum 13 ár. Gekk
betur að velja bleyjur en bindi. Hlakka sko ekki til að ganga með
þetta. En hvað gerir maður ekki til að geta fengið eitt svona kríli
í hendurnar. Var einmitt að tala við kallinn um það um daginn hvað
mig kvíður bara nákvæmlega ekkert fyrir fæðingunni. Er alveg
saliróleg yfir henni. Það sem mig kvíður fyrir er að ef ég rifna
eitthvað og verð saumuð hvað það verður þá örugglega helvíti sárt
að pissa á eftir. Ji hvað maður er bilaður .
Kveðja til ykkar allra frá ruglaða fólkinu í Eslöv 
»
06.02.2006 09:39:33 / elinluca
Láttu ekki svona Anna Sigga, er bara alveg agalega lítil net
manneskja. Fer kannski að verða aðeins duglegri núna þegar ég er
hætt að vinna. Sjáum hvað setur .
Alla vega eins og ég sagði þá er ég núna komin í orlof. Fyrsta
verkefni á dagskrá er að þvo öll krílafötin sem þegar eru til svo
að það sé nú allt tilbúið, ásamt íslenskum bleyjum og þvottapokum
og handklæðum. Svo það auðvita harðangurs-milliverkið sem á að fara
í sængurverið sem ég get dúllað mér við. Það verður góð blanda að
sauma og horfa á ólympíuleikana þegar þeir byrja. Kom góður svona
OS-guide með blaðinu í morgun þannig að ég veit nákvæmlega hvað er
sýnt hvenær og á hvaða stöð. Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur: Ég
uppi í sófa með milliverkið að horfa á ÆSI-spennandi keppni í
skíðagöngu.
Annars er ég nú farin að fá samdrætti nokkuð oft og einn og einn
með verk en samt ekkert reglulegt. Kannski krílið sé bara að plana
að koma á afmælisdaginn hans afa síns! Kallinn yrði nú ánægður með
það, að fá fysta barnabarnið á afmælisdaginn. En það yrði þá samt
helst að vera að kvöldi til þar sem minn kall verður á Íslandi að
vinna frá fimmtudeginum 9. og kemur heim aftur á laugardeginum. Hef
sko aldeilis ekki hugsað mér að gera þetta ein. 
Svona er þetta þegar maður er svona letibloggari, þá fær maður
algera munnræpu þegar maður loksins sest niður. Læt þetta duga í
bili og lofa að vera duglegri í framtíðinni. Ég LOFA Anna Sigga

»
29.12.2005 14:47:36 / elinluca
Þá er maður nú loksins orðin nettengdur hérna í nýja húsinu og
engin afsökun lengur að fara ekki að blogga almennilega. Enda ekki
seinna vænna, árið alveg að verða búið.
Við komum heim í gær eftir að hafa eytt jólunum með pabba mínum
og Lajlu og strákunum þeirra, sem mundu þá líklega vera bræður
mínir. Þetta var voðalega næs. Ekki mikið gert annað en að borða og
tala og borða svo aðeins meira, jú og svo var sofið pínulítið inná
milli. Litla krílið okkar alveg að fíla jólinn og lét það vel og
vandlega í ljós, þá sérstaklega á aðfangadag. Var alveg að gera
mömmu sína vitlausa með spörkum og látum nánast stanslaust frá 4 um
daginn og þar til ég loksins fór að sofa. Greinilegt jólabarn á
leiðinni enda hefur krílið það ekki langt að sækja.
Komum svo heim í gær og allt á kafi (alla vega svona aðeins) í
snjó. Luca fannst það voða gaman að fá aðeins að leika sér við að
skafa. Hann fær víst að gera það aftur þegar hann kemur heim í dag
þar sem það er búið að snjóa núna stanslaust í um 4 tíma og lítur
ekkert út fyrir að vera að minnka.
»
29.06.2005 09:29:56 / elinluca
Já. Ég vidurkenni tad alveg. Er alger letibloggari. Man tetta
svona af og til. Núna er ég tó búin ad gera síduna okkar ad
upphafssídunni hérna í tölvunni tannig ad ég er núna minnt á tetta
í hvert skipti sem ég opna netid. Annars höfum vid tad vodalega
gott. Erum ad fara til Thailands á morgun og voda spennt fyrir tví.
Annars er ég ekki ad sofa neitt voda vel. Held reyndar ad tad sé
bara ad ég turfi ad venjast rúminu okkar aftur. Tad er nefnilega
frekar stíf dýnan í tví, sem mér finnst voda gott en tarf samt
alltaf ad venjast tví aftur ef ég hef ekki sofid í tví í einhvern
tíma. Nú veit ég ekki hversu dugleg ég verd ad koma med fréttir
medan vid erum úti en ég skal reyna ad vera voda dugleg tegar ég
kem heim. Lofa tví.
Takk kaerlega allir sem voru í brúdkaupinu okkar. Tetta var
algert aedi og vona ad allir hafi skemmt sér jafn vel og vid.
Hlakka til ad sjá ykkur öll sem fyrst aftur.
Knús og kossar frá Sverige!!!
»
28.05.2005 12:13:41 / elinluca
Rétt ad koma inn til ad hvíla mig á sólinni og skrifa hér og gera alla abbó. Sit í dag úti í sólinni og steiki mig. Tad er 24 stiga hiti og heidskýrt. Reyndar búin ad heyra ad tad sé voda gott vedur heima líka enn ég tarf alla vega ekki ad vera í kuldagalla til ad geta setid úti í sólinni. Na na na na na na........ Kallinn stakk mig af til Íslands í gaer tannig ad ég er grasekkja enn eina ferdina. Annar nóg ad gera hjá mér. Fór í lokahófs grillveislu í gaer med kórnum mínum. Ekkert smá stud. Sungid og trallad langt fram á nótt. Endadi med ad konan hanns Sverris (madurinn sem hélt veisluna) bad okkur vinsamlegast ad koma inn og halda áfram tar ádur en nágranarnir faeru ad hirngja á lögguna. Svo í dag er tvottadagur og sólböd. Madur kvartar ekki undan ad búa hérna á svona dögum. Anna Sigga vinkona er svo ad koma í heimsókn og saman aetlum vid ad grilla okkur og svo kjöt seinna tegar vid verdum svangar. Svo er tad sófinn og nammi med "Good morning vietnam" í kvöld. Minn nefnilega aldrei séd hana ádur. Heyrt ad hún sé nokkud gód. Jaeja, aftur út. Búin ad taka nógu langa pásu!!!! Knús til allra á klakanum.
»
24.05.2005 16:14:12 / elinluca
Ji já núna er ég greinilega adeins ad fara ad verda duglegri ad
skrifa hérna. Gaman ad sjá ad einhverjir kíkja.
Ég er grasekkja í dag. Kallinn í London ad vinna. Ágaett reyndar
ad geta dúllad sér útaf fyrir sig af og til . Annars er nú ekki
mikid ad frétta hédan. Gengur haegt en örugglega med húsid og Luca
spurdi um daginn hvort tad vaeri einhver haetta á tví ad
afhendingunni seinkadi eitthvad en kallinn sem hann taladi vid
sagdi ad tad hefdi ekki gerst í 15 ár og yrdi mjög hissa ef tad
gerdist núna. Fengum ad fara adeins inn um daginn og fara upp á
efri haedina og allt. Sáum líka ad eldhúsinnréttingin er komin
tannig ad tetta kemur allt saman med kalda vatninu.
Jaeja, tetta verdur víst létt og laggott í dag. Tarf ad drífa
mig á kóraefingu. Knús frá svítjód!!!
»
Síður: 1 2
|
|